Siðareglur 365 miðla ehf.

Siðareglur 365 miðla ehf.

Stjórn 365 miðla ehf. (hér eftir: 365) setur eftirfarandi siðareglur fyrir fréttamiðla 365. Siðareglurnar gilda einnig um sjálfstæða þáttagerð á vegum miðla 365 eftir því sem við á.

Allir fréttamiðlar 365 skulu vinna eftir reglum fjölmiðla- og tjáningarfrelsis með þeim takmörkunum sem leiða af friðhelgi einkalífs. Meginreglur fjölmiðlafrelsis koma fram í þeirri ábyrgð sem hlutlaus og sanngjörn fjölmiðlaumfjöllun felur í sér, sem stuðlar að trúverðugleika miðlanna. Reglur tjáningarfrelsis skulu virtar með þeirri meginreglu að aðilar umfjöllunarefnis eiga rétt á að koma að sínum sjónarmiðum sem og að njóta verndar frá ómálefnalegri og ólöglegri umfjöllun.

Siðareglur þessar skulu taka mið af gildum 365 miðla, sem eru: sköpunargleði, samstarf, áreiðanleiki og arðsemi. Það gildi sem er einna veigamest í þessu samhengi er áreiðanleiki, sem stendur fyrir: ábyrgð, heiðarleika, aga, trúverðugleika og öryggi.

Ritstjórnir miðla 365 (hér eftir: ritstjórnir*) leitast við að gera ekkert það sem brýtur gegn viðmiðunum þeim sem settar eru fram í siðareglum þessum. Ítarlegri starfsreglur hvers miðils skulu taka mið af siðareglunum og vera staðfestar sem slíkar af stjórn 365.
 
ÁREIÐANLEIKI
Ritstjórnir skulu hafa að forgangsatriði að aldrei sé efast um trúverðugleika miðla 365 og starfsfólks þeirra. Ritstjórnir skulu því nálgast efnistök með hlutleysi og virðingu fyrir öllum hliðum máls þar sem ekki er dreginn taumur málsaðila.

Ritstjórnir leitast við að hafa staðreyndir máls réttar og heimildavinnu vandaða og passa sérstaklega upp á að gerður sé skýr greinarmunur á milli staðreyndar og skoðunar. Ávallt skal leiðrétta mistök svo fljótt sem verða má.

Ritstjórnir skulu vera mannaðar fjölbreyttu starfsfólki, með mismunandi menntun, bakgrunn og lífsviðhorf, til að tryggt sé svo sem frekast er unnt að miðillinn sé málsvari ólíkra skoðana.

Efnistök skulu aldrei vera háð hvers kyns hagsmunum og/eða hagsmunaaðilum og skulu ávallt hafa það eitt að leiðarljósi að þjóna miðlun vandaðra upplýsinga til almennings.

Hagsmunir auglýsenda og/eða eigenda eru aldrei hafðir til hliðsjónar við vinnslu efnis. Til að almenningur þurfi aldrei að vera í vafa um hlutleysi umfjöllunar skal gera skýran greinarmun á auglýsingum og öðru efni. Einnig skal taka fram ef eigendur miðilsins eru efni fréttaumfjöllunar.

Ritstjórnir skulu aldrei notfæra sér á einhvern hátt í eigin þágu upplýsingar eða aðstæður sem skapast vegna fréttaöflunar.

Ritstjórnir skulu eftir fremsta megni hafa að vettugi hvers kyns hótanir eða aðrar þvinganir vegna fréttaumfjöllunar.

ARÐSEMI
Virðing gagnvart umfjöllunarefni er grundvöllur trausts á miðlunum. Traust á miðlunum er grundvöllur arðsemi þeirra. Ritstjórnir skulu hafa að leiðarljósi að haga vinnulagi eftir því að hver miðill skili arðsemi, á þann hátt að trúverðugleiki miðilsins sé ávallt forgangsatriði og að borin sé virðing fyrir umfjöllunarefni og aðilum þess.

Ritstjórnir skulu bera virðingu fyrir þeim landslögum sem umfjöllunarefni eða nálgun þess getur átt við um hverju sinni, til að mynda reglum um friðhelgi einkalífs og reglum um meiðyrði. Forðast skal að 365 verði fyrir hvers kyns fjárhagslegu tjóni vegna umfjöllunar. Ritstjórar hverju sinni munu gera samning við 365 þar sem kveðið er á um rétt 365 til að sækja til viðkomandi ritstjóra þær fjárhagslegu bætur sem dæmdar verða vegna slíkra mála, þó að hámarki allt að einum mánaðarlaunum ritstjóra. Slíkt fyrirkomulag er liður í að festa enn betur í sessi sjálfstæði ritstjórna miðla 365. Þar fari saman ritstjórnarlegt frelsi, sjálfstæði og ábyrgð.

Ritstjórnir villa ekki á sér heimildir við öflun frétta og upplýsa ávallt ef einhvers konar upptökur eru notaðar við fréttaöflun, nema í undantekningum þar sem almannahagsmunir mæla með því og það er gert með samþykki forstjóra 365.

Ekki skal birta upplýsingar um einkahagi fólks, nema ef það er opinberar persónur. Hvað sé opinber persóna er metið hverju sinni. Undantekning er gerð ef persóna vill fá að segja frá einkahögum sínum í fjölmiðlum og enginn vafi er um ósk viðkomandi til þess. Aldrei skal ganga of nærri einkalífi, sorg eða vandræðum aðila nema almannahagsmunir krefjist þess.

Ritstjórnir bera virðingu fyrir meginreglu réttarríkisins um að aðilar eru saklausir uns sekt þeirra er sönnuð og bera virðingu fyrir ábyrgð fjölmiðla í allri slíkri umfjöllun. Í umfjöllun um sakamál skal að öllu jöfnu ekki nafngreina sakborning fyrr en hann er ákærður. Undantekningar á slíkri nafnleynd geta átt við ef viðkomandi á langa brotasögu í ofbeldismálum, umfang málsins vekur mikla athygli, alvarleiki máls réttlætir slíka nafnbirtingu og/eða nafn viðkomandi hefur þegar komið fram á öðrum vettvangi. Þegar um nafnbirtingar er að ræða áður en fullnaðardómur er genginn er þess gætt að efnistök og orðalag taki mið af því að ekki er búið að sakfella í viðkomandi máli og því sé ekki að finna ósannaðar fullyrðingar af neinu tagi um meint brot. Þolendur ofbeldisbrota eru að öllu jöfnu ekki nafngreindir og aldrei þolendur kynferðisbrotamála eða börn. Í einkamálum er það mat ritstjórna hverju sinni hvort að aðilar máls séu nafngreindir.

Ritstjórnir gæta trúnaðar við heimildarmenn ef þeir óska nafnleyndar, en þeir eru þó alltaf hvattir til að koma fram undir nafni.

Almennt skal hafa tvo sjálfstæða heimildarmenn frá fyrstu hendi að sérhverri viðkvæmri frétt, en viðkvæm er sú frétt sem hlutaðeigendur reyna af einhverjum ástæðum að halda leyndri fyrir fjölmiðlum. Nægilegt er þó að hafa einn heimildarmann ef ritstjórar meta að sú heimild sé sérstaklega örugg.

Varast skal að skrifa innganga, punkta og fyrirsagnir sem ganga lengra en frétt gefur tilefni til.

Bera skal virðingu fyrir höfundarrétti og ávallt skal geta orðréttra heimilda.

SKÖPUNARGLEÐI OG SAMSTARF
Ritstjórnir starfa í umboði stjórnar 365 í þágu lesenda, áhorfenda og hlustenda og hafa hagsmuni þeirra í fyrirrúmi. Mikilvægt er að viðmælendur og samstarfsaðilar miðlanna treysti því að þar séu alltaf viðhöfð fagleg og sanngjörn vinnubrögð hjá ritstjórnum, til að festa í sessi faglegt samstarf milli miðlanna og almennings. Þó eiga ritstjórnir alltaf lokaorð um hvað er til umfjöllunar, og þá hvernig, en þá skal gæta þess að ummæli aðila eða myndbirtingar séu ekki óþarflega særandi, aðila til minnkunar og/eða slitin úr samhengi.

Ritstjórnir miðla 365 skulu eiga með sér samstarf um umfjöllun um aðra miðla 365 þegar það á við, með þeim takmörkunum sem hljótast af nauðsyn hlutleysis og trúverðugleika miðlanna.

Ritstjórnir allra miðla 365 skulu saman og hver í sínu lagi leita nýrra leiða til að bæta umfjöllun eða miðlun hennar til að vera raunverulegur, ábyrgur og ferskur valkostur í fréttaumfjöllun á Íslandi.


Samþykkt á stjórnarfundi 365 miðla ehf.
4. júní 2009

____________________
* Stjórnendur fréttamiðla eru í þessu skjali nefndir ritstjórar, þótt reglurnar taki jafnt til ljósvaka- og prentmiðla.




Leturstærðir


Tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli