Fréttablaðið er traustur fréttamiðill.
Auglýsendur: Hagsmunir auglýsenda eru ekki hafðir til hliðsjónar við vinnslu og birtingu efnis í blaðinu.
Bein ræða: Bein ræða er aðeins notuð þegar heimild er nafngreind. Fjölmiðill eða hluti hans telst heimild í þessu samhengi. Ummæli fólks í skoðanakönnunum Fréttablaðsins mega birtast nafnlaus, enda eru nöfnin ekki þekkt.
Blekkingar: Starfsfólk ritstjórnar villir ekki á sér heimildir, þegar það aflar frétta.
Bréfsefni: Starfsfólk ritstjórnar notar ekki bréfsefni eða önnur einkenni blaðsins í óviðkomandi skyni.
Börn: Sérstök aðgát er viðhöfð, þegar myndir eru teknar af börnum eða talað við þau. Yfirmenn ritstjórnar eru látnir vita. Sérstök áhersla er lögð á hagsmuni barna í kynferðisbrotamálum.
Efnisflokkun: Greint er á milli frétta, skoðana og afþreyingar í blaðinu og efnið birt á mismunandi stöðum í blaðinu. Auglýsingar eru aðgreindar frá öðru efni blaðsins.
Einkamál: Ekki eru birtar upplýsingar um einkahagi fólks, svo sem um kynhegðun þess, lyfjanotkun, vímuefnanotkun og félagsleg og fjárhagsleg vandamál, nema viðkomandi aðilar séu opinberar persónur eða vilji sjálfir skýra mál sitt á vegum fjölmiðla.
Fyrirtæki teljast ekki til persóna í þessum skilningi.
Til dæmis er fjallað um fjárhagsleg vandamál fyrirtækja.
Fjölmæli: Starfsfólk ritstjórnar forðast efnistök sem stríða gegn lögum um fjölmæli.
Fríferðir: Yfirmenn ritstjórnar taka ákvarðanir um hvort þiggja skuli ókeypis ferðir eða gistingu, og hafna slíkum boðum ef þeim fylgja skuldbindingar.
Frægð: Starfsmenn og helztu aðstandendur blaðsins eru ekki frægðarfólk til umfjöllunar í blaðinu.
Gjafir: Starfsfólk ritstjórnar þiggur sem slíkt ekki persónulegar gjafir og segir yfirmönnum frá tilraunum til þeirra.
Greiðslur: Fréttablaðið greiðir ekki fyrir rétt til efnis nema viðurkenndum aðilum á því sviði.
Hagsmunir: Starfsfólk ritstjórnar lætur yfirmenn vita um hugsanlega hagsmunaárekstra vegna fjölskyldna sinna og tengdafólks, áhugamála sinna, félagstengsla og fjármála.
Happdrætti: Starfsmenn og nánustu skyldmenni þeirra geta ekki unnið til verðlauna í uppákomum fyrir lesendur.
Heimildamenn: Starfsfólk ritstjórnar gætir trúnaðar við heimildarmenn. Heimildarmenn eru hvattir til að koma fram undir nafni.
Hlutverk: Starfsfólk ritstjórnar ber undir yfirmenn sína, ef það hefur áhuga á að taka að sér opinbert hlutverk, svo sem að stjórna fundum og vera falið að taka þátt í umræðu á fundum eða taka að sér önnur verkefni, sem gætu haft áhrif á starf þess á ritstjórn.
Hugbúnaður: Starfsfólk ritstjórnar safnar ekki ólöglega fengnum hugbúnaði á tölvur blaðsins.
Höfundaréttur: Orðréttra heimilda er jafnan getið.
Leiðréttingar: Efnislegar villur eru leiðréttar í stuttu máli við fyrsta tækifæri á föstum stað í blaðinu.
Ljósmyndir: Breyttar og samsettar ljósmyndir eru sérstaklega auðkenndar sem slíkar.
Málfar: Texti blaðsins er skrifaður á góðri íslensku sem er skiljanleg öllum almenningi, en ekki á sérmáli stofnana eða stétta.
Meðmæli: Starfsfólk ritstjórnar mælir ekki með vörum og þjónustu í auglýsingum án leyfis yfirmanna.
Myndbirtingar: Sömu reglur gilda og um nafnbirtingar (sjá hér að neðan).
Nafnbirtingar: Í tengslum við kærur, ákærur og dóma eru fremur birt nöfn manna í líkamlegum ofbeldismálum heldur en í málum af fjárhagslegum toga. Hafa verður þó í huga að í síðara tilvikinu er nafnleynd oft marklítil, af því að mörg fjárhagsleg mál tengjast atvinnurekstri á þann hátt að nöfn manna eru þegar kunn þeim sem vita vilja eða nota viðskiptahandbækur. Þegar persónur sæta kæru fer eftir mikilvægi málsins og kringumstæðum þess, til dæmis brotasögu viðkomandi aðila, hvort aðilar eru nafngreindir. Almenna reglan er sú, sem notuð er í yfirgnæfandi meirihluta tilvika, að birta ekki nöfn á slíku stigi. Undantekningar gætu verið margdæmdir síbrotamenn í ofbeldismálum eða forsvarsmenn og aðrir talsmenn nafngreindra fyrirtækja.
Nákvæmni: Starfsfólk ritstjórnar gætir þess að rétt sé farið með hvert smáatriði í blaðinu. Nýbúar: Sérstök aðgát er höfð við að geta uppruna eða þjóðernis fólks, ef það varðar ekki málsefni.
Orðaval: Ekki eru notuð móðgandi orð eða blótsyrði utan beinnar ræðu nema málefnið kalli beinlínis á slíkt. Um slík atriði er rætt við yfirmenn ritstjórnar.
Óhlutdrægni: Ekki er dreginn taumur málsaðila í fréttum.
Rannsóknir: Hafa þarf tvo sjálfstæða heimildarmenn frá fyrstu hendi að sérhverri viðkvæmri frétt sem fæst með aðferðum rannsóknarblaðamennsku. Viðkomandi yfirvald getur talist vera næg heimild, þótt það sé eitt til frásagnar.
Viðkvæm er sú frétt, sem hlutaðeigendur reyna af einhverjum ástæðum að halda leyndri fyrir fjölmiðlum eða getur orðið tilefni málsóknar á hendur fjölmiðlinum eða starfsfólki hans. Reglan nær ekki aðeins til frétta sem ætlunin er að halda leyndum yfirleitt, heldur líka til þeirra frétta sem ætlunin er að gefa frjálsar að ákveðnum umþóttunartíma liðnum.
Ritskoðun: Enginn fær send afrit af óbirtu efni. Ef viðmælendur óska eru lesnir upp fyrir þá þeir kaflar þar sem vitnað er í þá sjálfa í beinni eða óbeinni ræðu.
Segulbönd: Starfsfólk ritstjórnar notar ekki leyndan hlerunarbúnað. Viðtöl eru tekin á segulband til að tryggja nákvæmni í efni blaðsins.
Sjálfsvíg: Ekki er sagt frá sjálfsvígum sem slíkum í blaðinu.
Sorg: Farið er varlega að fólki, sem hefur orðið fyrir áfalli.
Traust: Starfsfólk ritstjórnar gætir þess í öllum sínum verkum að efla traust lesenda á fjölmiðlinum og starfsfólki hans.